26.2.2009 | 10:25
Vestfirska valkyrju á þing
Vinkona mín og samstafskona um margra ára skeið, Ólína Þorvarðardóttir, hefur ákveðið að gefa kost á sér til þingsetu með því að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Það eru sannarlega góðar fréttir fyrir kjósendur kjördæmisins því öflugri og heiðarlegri talsmaður kjördæmisins er vandfundinn. Ólína hefur aflað sér mikillar þekkingar og reynslu sem virkur þátttakandi í opinberri umræðu mörg undanfarin ár. Hún þótti skeleggur og vandaður fréttamaður á sínum tíma. Fréttir hennar vöktu iðulega athygli og umræðu, ekki síst umfjöllun hennar um framleiðslustýringuna í íslenskum landbúnaði sem hún setti fram á skýran og einfaldan hátt svo almenningur skildi. Mörgum eru enn minnisstæðar myndrænar fréttir af haugakjötinu svokallaða en þá arkaði Ólína upp í Gufunes og myndaði þegar verið var að henda á haugana mörgum tonnum af íslensku lambakjöti, til að rýma til í kjötgeymslum. Almenningi brá mjög í brún þegar það rann upp fyrir fólki hvað raunverulega var á seyði.Flestir minnast Ólínu einnig sem borgarfulltrúa Nýs vettvangs í Reykjavík 1990-1994 þar sem hún þótti standa sig mjög vel sem oddviti minnihlutans í Borgarstjórn Reykjavíkur, þrátt fyrir ungan aldur. Á þeim tíma hristi þessi skelegga kona vel uppi í umræðunni um borgarmál og hélt uppi öflugum málflutningi sem margir eru sammála um að hafi í reynd markað áherslurnar fyrir kosningastefnuskrá R-listans þegar hann tók við 1994. Á þeim árum sem hún stýrði Menntaskólanum á Ísafirði fjölgaði nemendum umtalsvert og skólinn varð eftirsóttur sem framsækinn menntastofnun.Færri vita að Ólína hefur verið ötul sem fræðimaður og þjóðfélagsrýnir óþreytandi talsmaður landsbyggðarinnar. Hún er hagyrðingur góður og hrókur alls fagnaðar á góðri stundu.Eftir að hún fluttist vestur gerðist hún meðlimur í Björgunarhundasveit Íslands og hefur verið mjög virk í Vestfjarðardeild þeirrar sveitar. Hún er mikil útivistarkona og gengur á Hornstrandir árlega með fræknum gönguhóp, sem ég er svo lánsöm að vera meðlimur í.Ólína er sannur vinur vina sinna og mikil fjölskyldukona. Hún á aldraða móður og fimm börn og eitt barnabarn sem hún heldur vel utan um.
Ég hvet fólk til þess að veita Ólínu brautargengi sitt í komandi prófkjöri svo ótvíræðir hæfileikar hennar fái að njóta sín í þágu þjóðarinnar. Hún er sannur jafnaðarmaður; réttsýn, ósérhlífin og síðast en ekki síst hugkrökk. Hún hefur alla tíð verið málsvari lítilmagnans en er engu að síður óhrædd við að standa upp í hárinu á þeim sem meira mega sín. Heiðarleiki, réttsýni og tryggð lýsa henni e.t.v. best.
Um bloggið
Skoðanir mínar
Bloggvinir
- omarragnarsson
- attilla
- konukind
- kolbrunb
- eddabjo
- annabjo
- helgasigrun
- olinathorv
- rheidur
- steingerdur
- annagisla
- sifjar
- berglist
- reynirgudjonsson
- gudrunmagnea
- kjarrip
- hhk
- loathor
- abg
- asabjorks
- astar
- gattin
- rustikus
- saxi
- ellasprella
- eythora
- fararstjorinn
- lucas
- kokkurinn
- hemba
- nonniblogg
- kolbrunerin
- hjolaferd
- larahanna
- lillagud
- lindagisla
- fjola
- stebbifr
- sveinni
- steinibriem
- thorasig
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er þér innilega sammála um ágæti Ólínu. Hún stóð sig vel á þingi og sem borgarfulltrúi og á fullt erindi á hið háa Alþingi. Ég held að núna séu margar mjög frambærilegar konur á leið í pólitík. Auðvitað hafa þær ekki allar erindi sem erfiði en eftir standa þær sterkustu, þær sem við þörfnust mest núna.
Hulda Elma Guðmundsdóttir, 26.2.2009 kl. 20:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.