Mænan er ráðgáta. Hjálpumst að.

Áætlað er að um 3,5 - 4,5 milljónir manna í heiminum búi við mænuskaða vegna slysa.
Á Íslandi eru rúmlega hundrað einstaklingar mænuskaddaðir. Nær helmingur þeirra
slasaðist í umferðarslysum. Þá hlýst mænuskaði einnig af völdum íþrótta, glæpa, sjúkdóma, vinnuslysa, útreiða og af ýmiss konar falli. Meðalaldur þeirra sem skaddast á mænu er um 20 ár þannig að flestir eru mjög ungir þegar þeir verða fyrir þessari lífsreynslu.
 

 Mænuskaði einn alvarlegasti skaði sem einstaklingar geta hlotið og hann skilur eftir sig mikla ólæknanlega eyðileggingu. En það er alltaf von og sú von endurspeglast í tilurð Mænuskaðastofnunar Íslands, sem varð til vegna þrautseigju Auður Guðjónsdóttur, sem hefur árum saman barist fyrir því að íslenska þjóðin beiti sér fyrir því á alþjóðavísu að lækning á mænuskaða verði að veruleika. Elja Auðar hefur vakið verðskuldaða athygli og nú hafa íslensk stjórnvöld, fyrirtæki og einstaklingar tekið höndum saman og sett á fót Mænuskaðastofnun Íslands í þeim tilgangi að styðja hugsjón hennar. 

Mænuskaðastofnunin var stofnuð 11. desember 2007. Markmið hennar er að vera leiðandi afl á sviði úrræða fyrir mænuskaddaða og vinna að því með öllum tiltækum ráðum að lækning á mænuskaða verði að veruleika. Aðaltilgangur stofnunarinnar er að vekja athygli á málefninu á alþjóðavettvangi og safna fé til handa læknum, vísindamönnum og öðrum sem vinna að framförum til heilla mænusködduðum. Gagnabanki hefur verið starfræktur í tvö ár með fulltingi Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar og Heilbrigðisráðuneytisins og er hugsaður sem alþjóðleg  upplýsingabrú um nýjungar í meðferð við mænuskaða.  Nú er hafið fjáröflunarátak til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands sem nær hámarki með beinni sjónvarpsútsendingu í opinni dagskrá á Stöð tvö á föstudaginn kemur. Landsfrægir skemmtikraftar koma fram í þættinum auk þess sem rætt verður við mænuskaddaða einstaklinga og aðstandendum þeirra. 

Almenningur getur lagt málefninu lið með því að hringja í símanúmerin 904-1000, 904-3000 og 904-5000 og verður þá upphæðin sem myndar seinni hluta símanúmersins gjaldfærð af símreikningi þess sem gefur. Þá er einnig hægt að leggja málefninu lið með því að kaupa gestaþraut úr tré sem seld verður á sjúkrahúsum landsins, í líkamsræktarstöðvum World Class, í verslunarmiðstöðvum, í verslunum Símans og Debenhams og á fleiri stöðum. Tekið verður á móti fjárframlögum í beinni útsendingu og munu læknar, hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk svara í símanúmerið 553-7600 Ég hvet ykkur öll til að fylgjast með á föstudaginn og hjálpa okkur að gera draum mænuskaddaðra að veruleika.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skoðanir mínar

Höfundur

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
Ragnheiður Davíðsdóttir er starfandi blaðamaður og háskólanemi, móðir tveggja sona og amma fjögurra barna.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • bidoogeg
  • bidoogeg
  • trautir
  • trautir
  • bruda-hond

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 37582

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband