5.5.2008 | 22:48
Ótrúlega skemmtileg mynd.
Hér fáið þið að sjá litla námsmanninn minn, sem reyndar er ekki lítill lengur, þegar hann var 3 ára. Þetta var á þeim árum sem ég vann á Nýju Lífi sem blaðamaður. Þessi mynd var notuð sem myndskreyting við grein sem ég skrifaði um kynjahlutverkin. Með Jökli mínum á myndinni er dóttir vinkonu minnar, Sigrúnar Ólafsdóttur, sem heitir Eva Dögg. Svo skemmtilega vill til að bæði eru þau við nám í Danmörku og hittust fyrir tilviljun eftir 20 ár í Árósum. Hún var að læra fatahönnun (nýútskrifuð) en hann er að læra ljósmyndun. Það er því undarleg tilviljun að meistarinn hans Jökuls míns í ljósmyndun heitir Grímur Bjarnason, sá hinn sami og tók þessa ljósmynd á sínum tíma! Takið eftir fatastíl Evu Daggar og fyrirsæætutöktunum í Jökli mínum á þessari mynd. Líklega hefur það ekki hvarflað að þeim á þessum tíma (hvað þá foreldrunum) að annað þeirra ætti eftir að hanna fatnað en hitt taka ljósmyndir þegar þau yrðu stór! Jökull var að gramsa í einhverju dóti hér heima og fann þá "slides" myndir sem hann fór að kanna nánar og þetta varð útkoman.
Hér kemur svo mynd af hinum stoltu foreldrum nýjasta fjölskyldumeðlimsins. Þau geta ekki leynt hamingju sinni - enda engin ástæða til! Drengurinn er dásamlegur.
Um bloggið
Skoðanir mínar
Bloggvinir
- omarragnarsson
- attilla
- konukind
- kolbrunb
- eddabjo
- annabjo
- helgasigrun
- olinathorv
- rheidur
- steingerdur
- annagisla
- sifjar
- berglist
- reynirgudjonsson
- gudrunmagnea
- kjarrip
- hhk
- loathor
- abg
- asabjorks
- astar
- gattin
- rustikus
- saxi
- ellasprella
- eythora
- fararstjorinn
- lucas
- kokkurinn
- hemba
- nonniblogg
- kolbrunerin
- hjolaferd
- larahanna
- lillagud
- lindagisla
- fjola
- stebbifr
- sveinni
- steinibriem
- thorasig
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ji, en fyndin tilviljun! Eða er lífið okkar, ekki bara tilviljun, eftir allt saman? - Ja, allavega er skondið, að velta fyrir sér, tilviljunum, þegar svona hlutir gerast, þau hittast eftir 20 ár, bæði í námi í Danmörku, Árósum, hún í hönnun, hann í ljósmyndun, og hver er svo meistarinn hans nema Grímur. Er þetta tilviljun? Einhverjir mundu nú segja að þetta væru FORLÖGIN. -
Ó, hvað þau eru falleg nýbökuðu foreldrarnir, með litla prinsinn sinn.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 5.5.2008 kl. 23:56
Frábærlega skemmtileg tilviljun og æðisleg mynd.
Steingerður Steinarsdóttir, 6.5.2008 kl. 10:54
Meiriháttar mynd.
Linda Samsonar Gísladóttir, 10.5.2008 kl. 14:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.