4.4.2008 | 11:16
Bílbeltin - alltaf!
Nánast daglega heyrum við fréttir af hörmulegum umferðarslysum þar sem fólk bíður bana eða slasast mjög alvarlega. Í alltof mörgum tilfellum kemur fram í fréttinni að farþegar og/eða ökumaður hafi kastast út úr bílnum. Fyrir þrjátíu árum hefði það ekki þótt sérstaklega fréttnæmt þótt fólk kastaðist út úr bílum t.d. við útafakstur eða í bílveltum. Í dag, árið 2008, 25 árum eftir lögleiðingu bílbelta á Íslandi hlýtur það að teljast undarlegt að enn skuli berast fréttir af fólki sem kastast út úr bílum með skelfilegum afleiðingum. Það þýðir nær undantekningarlaust að bílbeltin voru ekki spennt í umrætt sinn. Í starfi mínu sem forvarnafulltrúi VÍS ferðast ég mikið um þjóðvegi landsins og ek iðulega landshornanna á milli jafnt sumar sem vetur Víða í þéttbýli á landsbyggðinni má sjá fólk aka um götur án bílbelta og lítil börn sitja laus í fram- eða aftursætum bíla. Afsökun heimamanna fyrir þessu hátterni er oft sú að það taki því ekki að spenna beltið eða setja barnið í stólinn þær stuttu vegalengdir sem farið er! Slíkur hugsunarháttur er ekki aðeins fáránlegur heldur lífshættulegur. Þá hefur þráfaldlega sést til sumra ökumanna fólks- og vöruflutningabíla sem ekki nota bílbelti undir stýri á þjóðvegum landsins. Sumir þeirra eru haldnir þeim misskilningi að þeir séu undanþegnir notkun bílbelta en auðvitað er það fjarri lagi eins og reglugerð um undanþágu á notkun bílbelta kveður skýrt á um. Sömu sögu er að segja af mörgum leigu- og sendibílstórum sem telja sig undanþegna notkun bílbelta þegar þeir stunda leiguakstur. Svo er auðvitað ekki í öllum tilfellum enda gildir undanþága sendibílstjóra aðeins í örfáum undantekningartilfellum þegar um er að ræða dreifingu á vörum á milli húsa. Undanþága leigubílstjóranna er á sömu forsendum og lögreglumanna, þ.e. af öryggisástæðum og því eingöngu gild þegar þeir flytja farþega. Við allan annan akstur er bæði leigu- og sendibílstjórum skylt að nota bílbelti svo ekki sé talað um vöru- og fólksflutningabílstjórana sem aldrei eru undanþegnir bílbeltanotkun nema þar sem hætta er á skriðuföllum og snjóflóðum. Þá skal tekið fram að í einstaka tilfellum fá ökumenn læknisvottorð sem undanþiggur þá frá notkun bílbeltis en slík tilfelli eru afar fátíð. Notkun bílbelta bjarga mannslífum. Um það vitna fjölmörg dæmi.
Um bloggið
Skoðanir mínar
Bloggvinir
- omarragnarsson
- attilla
- konukind
- kolbrunb
- eddabjo
- annabjo
- helgasigrun
- olinathorv
- rheidur
- steingerdur
- annagisla
- sifjar
- berglist
- reynirgudjonsson
- gudrunmagnea
- kjarrip
- hhk
- loathor
- abg
- asabjorks
- astar
- gattin
- rustikus
- saxi
- ellasprella
- eythora
- fararstjorinn
- lucas
- kokkurinn
- hemba
- nonniblogg
- kolbrunerin
- hjolaferd
- larahanna
- lillagud
- lindagisla
- fjola
- stebbifr
- sveinni
- steinibriem
- thorasig
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart hversu margir kjósa að nota ekki bílbelti og enn meira á óvart hve margir eru tilbúnir að leyfa börnunum sínum að valsa óvörðum um bílinn. Tvisvar í síðustu viku keyrðum við Gummi á eftir ungum hjónum sem voru með börn laus í aftursætinu. Það fór hrollur um mig.
Steingerður Steinarsdóttir, 6.4.2008 kl. 10:38
Það er rétt að enn fyrirfinnast einstaklingar sem nenna ekki að setja á sig bílbeltin, hugsa „það kemur ekkert fyrir mig".
Verðum að halda áfram að sannfæra þessa því þeir eru síðan slæmar fyrirmyndir fyrir þá sem umgangast þá sérstaklega ef börn og unglingar eru annars vegar. Endrum og sinnum sér maður líka barn í framsæti, sértaklega þegar ekið er út á landsbyggðinni og fólk er líklegast að fara milli bæja.
Kolbrún Baldursdóttir, 8.4.2008 kl. 09:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.