Er árangur loksins að nást?

 slys6

 

Í þau þrjátíu ár sem ég hef komið að umferðaröryggismálum, hefur mér oft liðið eins og ég get ímyndað mér að Bakkabræðrum hafi liðið þegar þeir áttuðu sig á að þeir voru endalaust að bera vatn í botnlausa tunnu. M.o.ö. það hefur stundum hvarflað að mér að gefast upp á þessu endalausa verkefni að reyna að hafa áhrif á almenning og stjórnvöld í baráttunni við umferðarslysin. Það sem hefur þó haldið mér við efnið er að af og til er hægt að merkja árangur af þessu forvarnastarfi. Þótt síðasta ár hafi ekki verið uppörvandi þegar litið er til banaslysa og annarra alvarlegra slysa, er þó eins og núna sé dropinn loksins farinn að hola steininn í þeirri baráttu. Undanfarin ár hefur alvarlegum umferðarslysum meðal ungmenna fækkað í hlutfalli við aðra aldurshópa. Vonandi er það sönnun þess að umferðarslysaforvarnir VÍS meðal ungmenna landsins hafi loksins skilað sér. E.t.v. er eftirfarandi saga, sem ég vona að sé einkennandi fyrir forvarnir okkar, staðfesting þess: Einn daginn þegar ég var að versla í einum stórmarkaðnum, víkur sér að mér ung stúlka og spyr hvort ég sé ekki sama konan og kom í skólann  til hennar nokkrum vikum fyrr. Ég játti því og þá sagði þessi unga stúlka að eftir heimsókn frá VÍS, væru nokkrir strákar í skólanum hennar, sem áður mættu alltaf akandi án bílbelta, alltaf með bílbeltin spennt. Þessi litla saga gladdi mig meira en orð fá lýst og endurspeglar e.t.v.  þá staðreynd að þau ungmenni, sem sótt hafa umferðarfundi VÍS, hafa sýnt mun lægri tjóns- og slysatíðni meðal viðskiptavina VÍS, en önnur ungmenni sem ekki hafa notið þessarar fræðslu. Ef fræðsla okkar hefur haft sömu áhrif á önnur ungmenni, er víst að árangur er að nást í baráttunni við umferðarslysin. En vissulega eru þeir enn of margir sem stunda ofsaakstur, ölvunarskstur og fleiri afbrot í umferðinni. Mér er þó næst að halda að það sé fámennur hópur ökumanna sem fátt virðist hafa áhrif á annað en öflug umferðarlöggæsla og harðar refsingar. Í þeim efnum er líka afar jákvæð breyting að eiga sér stað. Með sameiningu lögregluembætta hefur umferðarlöggæsla stóraukist og nú er svo komið að daglega heyrast fréttir af kærum lögreglunnar vegna hraðaksturs og ölvunaraksturs auk kæra vegna farsímanotkunar í akstri og vanrækslu á notkun bílbelta. Þau eru ófá skiptin sem sú sem þetta ritar hefur gagnrýnt lögregluyfirvöld opinberlega fyrir of litla áherslu á umferðarlöggæslu og þjóðvegaeftirlit. Þess vegna skal þess getið sem vel er gert og því vil ég hrósa hinum nýju embættum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og lögreglukstjórans á Suðurnesjum fyrir frábært starf að undanförnu sem vonandi er aðeins byrjunin á því sem koma skal í öflugri umferðarlöggæslu. Vissulega er skelfilegt að heyra fréttir af öllum þessum tilfellum sem menn eru stöðvaðir á ofsahraða en við megum ekki gleyma því að slíkar fréttir benda til þess að lögreglan sé að vinna vinnuna sína. Aukning á fjölda þeirra sem teknir eru fyrir ölvuna við akstur er að sama skapi engin sönnun fyrir því að fleiri aki undir áhrifum áfengis en áður. Það næst einfaldlega til þeirra þegar lögreglan stundar öflugt eftirlit. Sýnileiki og afskipti lörgreglunnar hefur geysileg fyrirbyggjandi áhrif. Það er því ekki nægilegt að stunda öflugt forvarnastarf meðal ungmenna því það eru líka þeir eldri sem brjóta af sér í umferðinni og sumir þeirra gætu kallast síbrotamenn umferðarinnar. Þá þarf að stöðva með löggæslu og hertum viðurlögum. Allt þarf þetta að spila saman og nú þegar við sjáum líka fram á tvöföldun helstu umferðaræðanna út frá Reykjavík, er víst að umferðarslysum mun fækka verulega ef marka má árangurinn af tvöföldum þess kafla sem þegar er kominn á Reykjanesbrautinni. Nú eru kosningar framundan og vonandi verða umferðaröryggismál og samgöngumál ofarlega á baugi – enda sameiginlegt hagsmunamál allrar þjóðarinnar – án tillits til pólitískra skoðanna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skoðanir mínar

Höfundur

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
Ragnheiður Davíðsdóttir er starfandi blaðamaður og háskólanemi, móðir tveggja sona og amma fjögurra barna.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • bidoogeg
  • bidoogeg
  • trautir
  • trautir
  • bruda-hond

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband